top of page
kleifarvatn-lake.jpg

VELKOMIN Á HEIMASÍÐU STANGAVEIÐIFÉLAGS HAFNARFJARÐAR

SVH er félag með langa hefð, en félagið var stofnað í kringum veiði í Hlíðarvatni í desember árið 1951. Fljótlega hófst einnig fiskirækt i Kleifarvatni og seinna sömuleiðis í Djúpavatni. Annars  leggur félagið áherslu á að bjóða félagsmönnum fjölskylduvæn veiðisvæði á hagstæðu verði, og hvetur veiðimenn til að ganga vel um veiðisvæði og bera virðingu fyrir bráðinni.​

VIÐBURÐIR FRAMUNDAN

FRÉTTIR

13. mar. 2025

Góð mæting á opið hús

log small.png

24. feb. 2025

Umsóknarfrestur veiðileyfa 2025 er liðinn

log small.png

7. feb. 2025

Búið að opna fyrir umsóknir veiðileyfa 2025

log small.png

Veiðisvæðin okkar

Hlíðarvatn í Selvogi

Silungsveiði

Hlíðarvatn er rúmlega 3,3 km² stöðuvatn í Selvogi vestanverðum í 1 m hæð yfir sjó. Mesta dýpi þess er 5 m.,  afrennsli þess er Vogsós. Allmikið er af fiski í vatninu og meðalþyngd fer vaxandi, langmest er það bleikja, bæði sjóalin og vatnableikja og á hverju sumri veiðast nokkrar 5 – 7 punda bleikjur.

djup1_edited.jpg

Djúpavatn

Silungsveiði

Djúpavatn er 0,15 km² stöðuvatn sunnan Trölladyngju og Soga á Reykjanesskaga í 195 m hæð yfir sjó. Dýpsti hluti þess er 16,7 m og það er líklega gígvatn líkt og Grænavatn á Vesturhálsi og Arnarvatn á Sveifluhálsi.

Kleifarvatn

Silungsveiði

Kleifarvatn er stærsta vatnið á Reykjanesskaga og liggur á milli Sveifluháls og Vatnshlíðar. Það er þriðja stærsta vatnið á Suðurlandi, 9,1 km², og eitt af dýpstu vötnum landsins, 97m. Það hefur lítið aðrennsli en ekkert frárennsli. Silungsseiði af bleikjustofni úr Hlíðarvatni í Selvogi voru sett í vatnið á sjötta áratugnum og þau hafa dafnað vel.

Hafa samband

Ef þú hefur einhverjar spurningar til okkar þá endilega sendu okkur tölvupóst á svh@svh.is

+354 565 4020

Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar,  Flatahrauni 29,  220 Hafnarfjörður.  svh@svh.is   Tel: +354 565 4020

©2025 Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar

  • Facebook
bottom of page